Textaþjónusta

Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..

Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni.  Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).

Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.

Skoða nánar...

Vefstjóri til leigu!

“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum....meira
Innlend markaðssetning á netinu
Markaðssetning á netinu er að ýmsu leyti ólík hefðbundinni markaðssetningu.  Möguleikar eru margir og vægi beinna auglýsinga er þar hlutfallslega minna, þó að þær séu að sjálfsögðu mikilvægar.  Áður en farið er út í birtingu vefauglýsinga getur því verið skynsamlegt  fyrir fyrirtæki að huga að nokkrum öðrum atriðum.

1.  Vefsíðan
Grunnurinn að góðri markaðssetningu á netinu er að sjálfsögðu viðmótsgóð heimasíða sem gerir neytendum auðvelt fyrir að afla sér upplýsinga og er aðgengileg fyrir leitarvélar.  Fyrir verslunarfyrirtæki sem ekki reka vefverslun er óhætt að mæla með vörukerfi VK hugbúnaðar sem er sérstaklega sniðið að þessum þörfum.

2.  Leitarvélar og upplýsinganet
Átak í markaðssetningu getur skarast við SEO vinnu (leitarvélabestun) eða verið unnið í framhaldi af þeirri vinnu.  Huga þarf að skráningu á leitarvélar, alþjóðlegar og innlendar, og innlend upplýsinganet.  

Íslendingar nota alþjóðlegar leitarvélar í miklum mæli, einkum Google.  Skráning á Google er frí en Google býður auk þess upp á kostaða tengla eða auglýsingar þar sem borgað er fyrir smellinn (á ensku: Pay Per Click eða PPC).  “PPC” herferðir hafa verið vinsælar erlendis um langt skeið en okkur er ekki kunnugt um að boðið sé upp á þennan möguleika innanlands, enn sem komið er.

Helstu innlendu leitarvélarnar eru Leit og Finna.  Tekið er gjald fyrir skráningu á þessar leitarvélar sem veitir forgang í leitarniðurstöðum.


3.  Tenglar
Bygging tenglanets er einnig vinna sem getur verið hluti af leitarvélabestun.  Margir vefir bjóða upp á kostaða tengla og einnig geta verið möguleikar á tenglaskiptum, ekki síst ef fyrirtæki bjóða sérhæfðar vörur eða búa yfir áhugaverðum upplýsingum á vefsvæðum sínum.  Greinaskrif eru einnig mjög áhugaverður möguleiki til að afla tengla.


4.  Greinaskrif
Með greinum sem birtar eru á öðrum vefsíðum fylgir yfirleitt tengill í eina átt, þ.e. inn á vefsíðu höfundar.  Leitarvélar taka meira mið af slíkum tenglum en þegar um tenglaskipti er að ræða og álíta auk þess vefsíðuna mikilvægari.
Greinaskrif eru einnig mjög áhrifarík kynning.  Góðar greinar auka traust neytenda og virðingu fyrir fyrirtæki þínu.  Lesandi sem fer inn á vefsíðuna þína í framhaldi af lestri greinar hefur jákvætt hugarfar gagnvart þínum vörum eða þinni þjónustu og er líklegri til að vilja eiga við þig viðskipti.  (Greinaskrif eru hluti af  textaþjónustu VK hugbúnaðar).


5.  Bloggsíður og umræðutorg
Mörg fyrirtæki hafa nýtt sér almennar bloggsíður og umræðutorg til markaðssetningar, oft með góðum árangri.  Hér þarf þó að fara varlega.  Það er nauðsynlegt að taka tillit til þess að þetta er ekki vettvangur sem er almennt ætlaður til markaðssetningar og ef rangt er að farið getur þessi viðleitni haft öfug áhrif og skaðað ímynd fyrirtækis þíns.

Bloggsíður á heimasíðum fyrirtækja, ætlaðar fyrir starfsfólk og/eða viðskiptavini eru mjög áhugaverður kostur.  Þessar síður hafa oft mikil áhrif til kynningar og eru líklegar til að auka umferð inn á heimasíðuna.


6.  Póstlistar
Mikilvægi póstlista í markaðssetningu verður seint ofmetið.  Samkvæmt rannsóknum er vefpóstur til jákvæðra viðtakenda sú kynning sem skilar hlutfallslega mestum árangri af öllum tegundum kynninga eða auglýsinga.  Góður póstlisti gefur fyrirtæki margs konar möguleika til að treysta böndin við viðskiptavini sína og sparar því umtalsvert auglýsingafé í tímans rás.  Þetta er markaðstæki sem tekur nokkurn tíma að byggja upp en er fyllilega þess virði.



Ekki hika við að hringja í okkur í síma 553 7400 eða senda okkur póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það ef þú vilt vita meira um innlenda markaðsráðgjöf VK hugbúnaðar.  Við svörum öllum fyrirspurnum með mikilli ánægju.