Textaþjónusta
Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..
Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni. Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).
Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.
Skoða nánar...
Vefstjóri til leigu!
“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum.... meira
|
Smekkleg grafísk hönnun er sjálfsagður hluti af flestum veflausnum, hvort sem um er að ræða veftengd kerfi, vefsvæði eða vefauglýsingar . VK hugbúnaður leggur áherslu á vönduð vinnubrögð á þessu sviði.
Vefhönnun lýtur að mörgu leyti sérstökum lögmálum. Útlitshönnun þarf að vera í samræmi við viðmót og virkni vefsvæða og oft þarf að taka tillit til annarra þátta, svo sem aðgengis fyrir leitarvélar . VK hugbúnaður hefur á að skipa vefsmiðum með mikla hönnunarreynslu og með mikla reynslu af samræmingu þessara þátta.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar að velja á milli þriggja möguleika:
- Innanhússhönnun. Við bjóðum vandaðar og aðlaðandi lausnir í samræmi við óskir og þarfir okkar viðskiptavina. Allir okkar vefir eru sérhannaðir.
- Sérfræðihönnun. Fyrir þá sem leggja áherslu á sérstaka og glæsilega hönnun sem vekur athygli leitum við til okkar ágætu samstarfsaðila .
- Samstarf. Mörg fyrirtæki eru í góðum tengslum við hönnuði eða auglýsingastofur sem hafa unnið lengi fyrir viðkomandi fyrirtæki og þekkja það vel. VK hugbúnaður leggur mikið upp úr góðu samstarfi við slíka aðila.
|
|