Textaþjónusta

Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..

Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni.  Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).

Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.

Skoða nánar...

Vefstjóri til leigu!

“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum....meira
Joomla!
VK hugbúnaður notar Joomla! vefumsjónarkerfið við almenna vefsmíði .  Joomla! er eitt öflugasta og framsæknasta vefumsjónarkerfi í heiminum í dag og er notað við lausn hinna fjölbreytilegustu verkefna, allt frá smíði á einföldum vefsvæðum til flókinna kerfislausna fyrir stórfyrirtæki.  Kerfið er áreiðanlegt, einfalt í notkun, aðlaganlegt að mismunandi þörfum – og auk þess elegant í útliti.

Joomla! býður upp á mjög víðtækt og öflugt þróunarumhverfi (application framework) sem gefur færi á útfærslu þróaðra einstakingsbundinna lausna á fjölmörgum sviðum.  

  • Kerfið hentar til smíði lagerkerfa, vörulista- og bæklingakerfa, pöntunarkerfa, skýrslukerfa og þróaðra skjala- og samskiptakerfa af ýmsu tagi.
  • Kerfið er hentugt til smíði tengiforrita og til að miðla upplýsingum úr öðrum upplýsingakerfum út á vefinn, hvort sem er í opnu eða lokuðu umhverfi.

Viðbótareiningar eru fjöldamargar (á fjórða þúsund talsins) og stöðugt bætast nýjar við.  Þessar viðbótareiningar er einnig hægt að aðlaga að einstaklingsbundnum þörfum.  Sem dæmi um viðbótareiningar má nefna:

Myndakerfi, rafkort, fréttakerfi, bloggkerfi, staðsetningakort, einkunnagjöf, umsagnir, veður ..
Dagatöl, klukkur, atburðadagatöl, bókunarkerfi...
Spjallborð, umræðutorg, skoðanakannanir, póstlistar, fréttabréf...

Joomla! er notendavænt kerfi.

Joomla! kerfið er einfalt í notkun og krefst engrar sérþekkingar.  Það er nóg að kunna á algeng ritvinnsluforrit eins og Word til að læra á stuttum tíma að uppfæra Joomla! vefsvæði.  Notandi skráir sig einfaldlega inn á sitt stjórnborð, sem er tengt við vefsvæðið, þegar  þörf er á að bæta við eða breyta innihaldi, uppfæra myndir eða ritstýra upplýsingum.
Fyrir þá sem kjósa að útvista þessu verkefni minnum við á sérstaklega hagkvæma uppfærsluþjónustu VK hugbúnaðar, Vefstjóri til leigu .