Textaþjónusta
Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..
Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni. Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).
Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.
Skoða nánar...
Vefstjóri til leigu!
“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum.... meira
|
|
Vefsvæði VK hugbúnaðar eru smíðuð í Joomla ! vefumsjónarkerfinu. Joomla er eitt af öflugustu og áreiðanlegustu vefumsjónarkerfum í heiminum í dag og býr yfir ótvíræðum kostum við vefsmíði. Meðal annars má nefna mjög fjölbreytta möguleika til viðmóts- og útlitshönnunar og auðvelda aðlögun að alþjóðlegum stöðlum og aðgengi fyrir vafra og leitarvélar.
Joomla! er “Open Source ” kerfi sem er í stöðugri þróun og er tengjanlegt við mikinn fjölda viðbótareininga. Með því að kjósa vefsvæði í Joomla! kerfinu tryggir þú þér vefsíðu sem býr yfir miklum þróunarmöguleikum og ekki er hætta á að úreldist. Joomla! vefsíður eru einnig sérstaklega auðveldar í uppfærslu. Það krefst aðeins lágmarks tölvuþekkingar að læra að uppfæra Joomla! vef á 10 - 15 mínútum!
Hvers vegna vef frá VK hugbúnaði? Hér eru nokkrar góðar ástæður:
- Einstaklingsmiðuð hönnun. Vefsíður frá VK hugbúnaði eru allar sérhannaðar en samt á frábæru verði! Við bjóðum upp á fagmannlega eigin hönnun , leitum til okkar frábæru samstarfsaðila eða störfum með hönnuðum viðskiptavina okkar, allt eftir aðstæðum hverju sinni.
- Alhliða stuðningur. VK hugbúnaður býður upp á þjónustu við textagerð, myndvinnslu og innsetningu á efni á meðan vefurinn er í smíðum – uppfærsluþjónustu og innlenda sem alþjóðlega internetráðgjöf eftir að vefurinn er kominn í loftið.
- Hagkvæmni. VK hugbúnaður leggur áherslu á hagkvæmar og hagnýtar lausnir. Hvort sem verkefni eru stór eða smá þá höfum við aðeins eina meginreglu: Að hámarka gæði og lágmarka verð til viðskiptavina okkar.
VK hugbúnaður býður þér fría ráðgjöf og þarfagreiningu! Hafðu samband við okkur með vefpósti (
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
) eða hringdu í okkur í síma 553 7400. Við tökum út verkefnið og gerum þér tilboð!
|
|