Textaþjónusta
Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..
Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni. Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).
Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.
Skoða nánar...
Vefstjóri til leigu!
“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum.... meira
|
Nú hefur vefverslun loks tekið við sér á Íslandi (og vonum seinna) og ýmsir farnir að hugleiða að koma sér upp vefverslun sem héldu að sér höndum á meðan þær voru enn mjög dýrar og viðskiptin frekar dræm. Það bendir líka margt til þess að nú sé góður tími fyrir fyrirtæki til að fara af stað með þessa starfsemi, freista þess að ná sterkri stöðu á internetinu og ná þannig forskoti á keppinauta sína.
Enda hefur vefverslun marga ótvíræða kosti. Þeir eru kannski augljósir en við skulum samt benda á nokkra:
- Með vefverslun hefur þú fjölmarga möguleika til að afla nýrra viðskiptavina.
- Vefverslun er ekki staðbundin. Verslun getur átt sér stað milli hverfa, milli landshluta, milli landa...
- Vefverslun er ódýrari í rekstri en hefðbundin verslun. Þú sparar rekstrarkostnað, bæði hvað varðar verslunarrými og starfsmannahald.
- Í vefverslun er alltaf opið.
Hagræði fyrir viðskiptavininn er einnig mikið. Kannanir segja að meiri hluti þjóðarinnar hefji leit að vörum og þjónustu á internetinu. Með því að versla á vefnum er hægt að ljúka viðskiptunum við tölvuskjáinn, fá vöruna senda heim og spara þannig bæði tíma og fyrirhöfn.
Hvers vegna vefverslun frá VK hugbúnaði?
VK hugbúnaður hefur margra ára reynslu af gerð vefverslana, bæði hér á landi og erlendis. Meðal verkefna fyrirtækisins er bæði að finna litlar verslanir með tiltölulega fáa vöruflokka og stærri verslanir með mikinn fjölda vörutegunda og tugmilljóna króna mánaðarveltu.
VK vefverslanir eru mjög öruggar. Þær eru útbúnar öflugri 128 bita dulkóðun og vottaðar af alþjóðlegu vottunarfyrirtæki.
VK vefverslanir byggja á alþjóðlegu kerfi, osCommerce, sem er vinsælasta vefverslunarkerfið í heiminum í dag, notað af tugum þúsunda fyrirtækja, og hefur á sér orð fyrir notendavæni og áreiðanleika. VK hugbúnaður aðlagar þetta kerfi að þörfum hvers viðskiptavinar.
VK hugbúnaður lætur sér annt um viðskiptavini sína eftir að vefverslunin er komin af stað og býður aðstoð við markaðssetningu, hvort sem er alþjóðlega eða innlenda, gerð vefauglýsinga og uppfærsluþjónustu ef óskað er eftir.
Meðal þeirra eiginleika sem VK vefverslanir hafa til að bera má nefna:
- Notendavænt stjórnborð. Auðvelt er að uppfæra texta og myndir, skipta út vörum eða bæta inn nýjum vöruflokkum.
- Góð yfirsýn yfir viðskipti og birgðastöðu.
- Sjálfvirkur útreikningur á sendingarkostnaði (og gengi ef þörf er á).
- Tenging við greiðslukortafyrirtæki (eða önnur greiðslumiðlunarfyrirtæki, svo sem PayPal) með fullkominni sjálfvirkni.
- Fullkominn öryggisstaðall og alþjóðleg öryggisvottun.
VK vefverslanir hafa þægilegt viðmót fyrir viðskiptavini. Þær bjóða upp á góða yfirsýn yfir vörur og vöruflokka, myndir njóta sín vel og verslunarferlið er einfalt og þægilegt.
Ef þú vilt vita meira um VK vefverslanir eða fá frá okkur verðtilboð, hringdu í okkur í síma 553 7400 eða sendu okkur póst á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Við svörum fúslega öllum fyrirspurnum.
|
|