Textaþjónusta

Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..

Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni.  Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).

Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.

Skoða nánar...

Vefstjóri til leigu!

“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum....meira
Vörukerfi
VK vörukerfið er ætlað til kynningar á vörum á internetinu.  Kerfið samanstendur af  vel skipulögðum vörusíðum, sem gera neytendum auðvelt fyrir að finna þær vörur sem þeir leita að, og notendavænu stjórnborði.

Neytendur eiga því að venjast í æ ríkara mæli að geta skoðað vörur á vefnum í stað þess að láta sér nægja almennar upplýsingar.  Þessi þáttur kynningar verður því stöðugt mikilvægari.

VK vörukerfið er góður kostur fyrir fyrirtæki sem ekki vilja fara út í vefverslun að sinni en einbeita sér þess í stað að kynningarþættinum.  Raunar er uppistaðan sú sama í báðum kerfum og auðvelt að breyta kerfinu í vefverslun síðar ef svo ber undir.


Helstu kostir VK vörukerfisins eru:

  • Vel skipulagðar og aðlaðandi vörusíður þar sem textar og myndir njóta sín vel og auðvelt er að stækka myndir.
  • Vörusíður sem eru fyrirstöðulausar og aðlaðandi fyrir leitarvélar .
  • Notendavænt stjórnborð, sem gerir auðvelt um vik að uppfæra texta og myndir, skipta út vörum eða bæta inn nýjum vöruflokkum.


Ýmsir viðbótarmöguleikar eru fyrir hendi til að auka enn á virkni vörukerfisins og ná betur til neytenda.  Eftirfarandi möguleikar eru td. áhugaverðir:

  1. Hægt er að bæta við pöntunarmöguleika og/eða fyrirspurnarmöguleika fyrir neytendur við hverja vörumynd.  
  2. Hægt er að setja inn valmöguleika fyrir tilboð sem tengist glugga á forsíðu.

Einnig getur verið mögulegt að tengja kerfið við önnur kerfi eða stafræn gögn til að auðvelda uppfærslu.



Ef þú vilt vita meira um VK vörukerfið eða fá frá okkur verðtilboð, hringdu í okkur í síma 553 7400 eða sendu okkur póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   Við svörum fúslega öllum fyrirspurnum.