Textaþjónusta

Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..

Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni.  Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).

Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.

Skoða nánar...

Vefstjóri til leigu!

“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum....meira
Bókunarkerfi fyrir hótel
Jomres

Jomres bókunarkerfið hefur verið í stöðugri þróun í á fjórða ár og verður sífellt betra!  Tvímælalaust einhver skynsamlegasti kostur sem völ er á fyrir meðalstór og minni hótel, gistiheimili og hótelíbúðakeðjur.

Kerfið kemur með AJAX bókunarformi, sýnir laus herbergi (eða íbúðir) og verð á rauntíma og gefur möguleika á greiðslu í gegnum internetið.  Gestir fá sjálfkrafa staðfestingu á bókun.

Kerfið býður upp á marga mismunandi valmöguleika og mikinn sveigjanleika varðandi verðstýringu o.fl.  Kerfið er ennfremur fallega hannað og býður upp á þægilega aðlögun að ímynd og útliti einstakra fyrirtækja.

VK hugbúnaður sér um uppsetningu á kerfinu og tengingu við heimasíður, hvort sem þær byggja á Joomla! kerfinu eða ekki.  Við bjóðum einnig upp á útlitsbreytingar, þýðingar og textagerð og aðra aðlögun að einstaklingsbundnum þörfum.

Smelltu hér til að skoða kynningu á Jomres bókunarkerfinu http://www.jomres-demo.net/