Textaþjónusta

Þarf ég að skrifa líka...??!
Þegar textar eru ritaðir fyrir vefsíður þarf að hafa tvo lesendahópa í huga sem eru mjög ólíkir: fólk og tölvur..

Ekki vanmeta textaþáttinn á vefsíðunni þinni.  Sá þáttur skiptir ef til vill mestu máli þegar upp er staðið (frá tölvunni).

Við bjóðum sérfræðiþjónustu í textasmíði fyrir vefsíður á íslensku og ensku.

Skoða nánar...

Vefstjóri til leigu!

“Vefstjóri til leigu” er uppfærsluþjónusta VK hugbúnaðar.
Ólíkt ýmsum fyrirtækjum sem taka fast mánaðargjald fyrir uppfærslu, hvort sem viðskiptavinurinn þarf á henni að halda eða ekki, þá býður VK hugbúnaður viðskiptavinum sínum....meira
Pöntunarkerfi fyrir heildsölufyrirtæki

VK pöntunarkerfið auðveldar heildsölufyrirtækjum móttöku pantana og skapar þeim þægilega boðleið fyrir upplýsingar til viðskiptavina.  Kerfið er aðgangsstýrt og gefur möguleika á mismunandi upplýsingum til mismunandi viðskiptavina eða hópa viðskiptavina.


Hvernig virkar VK pöntunarkerfið?

Viðskiptavinur fer inn á þína heimasíðu og skráir sig inn með notandanafni og lykilorði.  Hann kemur þá inn á sína sérsíðu þar sem hann getur skoðað og pantað vörur með einföldum hætti og séð yfirlit yfir fyrri viðskipti.

Þú hefur notendavænt stjórnborð þar sem þú sérð yfirlit yfir viðskiptavini.  Þar getur þú kallað fram upplýsingar með ýmsum hætti, flokkaðar eftir viðskiptavinum, tímabilum eða vörutegundum, og komið skilaboðum á framfæri.


Hagræði fyrir viðskiptavininn
  • Viðskiptvinurinn hefur á einum stað yfirlit yfir greiðslustöðu sína, stöðu pantana og fyrri viðskipti.  
  • Kerfið auðveldar honum yfirlit yfir vöruframboð.  Hann sér verð á vörum og hefur aðgang að ýmsum upplýsingum um þær.  
  • Pöntunarferlið er einfalt, þægilegt og vinnusparandi.

Þitt hagræði
  • Kerfið sparar fyrirtæki þínu vinnu við móttöku pantana.
  • Kerfið sparar vinnu við vinnslu og meðferð upplýsinga.
  • Kerfið styrkir samskipti þín við viðskiptavini og virkar söluhvetjandi.
 
Möguleiki er á tengingu við bókhalds- og lagerkerfi sem eykur enn á sjálfvirkni og þar með hagræði þitt af kerfinu.



VK  pöntunarkerfið hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum

Þarfir fyrirtækja eru eins mismunandi og fyrirtækin eru mörg.  VK pöntunarkerfið er hannað sérstaklega fyrir hvert og eitt fyrirtæki.  Lausnir geta verið allt frá mjög einföldum pöntunarkerfum upp í umfangsmikil upplýsingakerfi með mikilli sjálfvirkni.



Hafðu samband við okkur í síma 553 7400 eða sendu okkur póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   og fáðu fría kynningu á þeim möguleikum sem VK pöntunarkerfið býður upp á!